Allt í drasli

Það var mikið verið að leika hér í gær hjá systkinunum og fóru vinirnir heim án þess að hjálpa þeim að taka til eftir leikinn.  Astrid varð afar pirruð í morgun þegar hún vaknaði og sá aftur óreiðuna í herberginu frá því í gær.  Hún ÞOLIR ekki drasl og óreiðu eins og ég hef nokkrum sinnum nefnt og er bara ekki róleg fyrr en allt er komið í röð og reglu.  Veit ekki hvaðan þetta tiltektargen kemur, mér dettur helst í hug að því hafi verið bætt í glasið sem hún varð til í vorið 2001?   Þetta vantar allavega algjörlega í bróðir hennar.  Hann væri sennilega fínn kandídat í þáttinn hans Heiðars snyrtis "Allt í drasli"...... 

Og yfir í allt annað.  Ísabella mín er byrjuð að skríðaSmile Hún æddi af stað í gærkveldi eftir að vera búin að velta því vel fyrir sér í nokkra daga hvernig best væri að bera sig að.  Nú verður ekki aftur snúið.  Það er svo ótal margt sem hún á eftir að kanna í íbúðinni á fjórum fótum.  Nú byrjar semsagt tímabilið þar sem allt er grandskoðað í skúffum og skápumWinkSmile. Er ekki heimurinn dásamlega spennandi????


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Silla Ísfeld

Til hamingju með litlu skutluna, get rétt ímyndað mér hvað hún er montin núna. Nú verða rannsóknarleiðangrarnir teknir með trompi í hinum og þessum skúffum, á næstu vikum. Þetta er svo dásamlegur tími, nú verði þið bara á hlaupunum á eftir henni. Litla skottið.........

Silla Ísfeld, 9.4.2007 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband