Ætlar þú að vera hommi þegar þú verður stór?

Óborganlegt samtal 5 ára dóttur minnar og 3 ára sonar míns í morgun var eitthvað á þessa leið:

Hún:  "Ætlar þú að vera hommi þegar þú verður stór?"

Hann: "Nei ég ætla ekki að vera Hemmi" (Hemmi er nágranni okkar)

Hún: "Nei ég sagði hommi, ekki Hemmi.  Veistu hvað hommi er?"

Hann:  "Nei"

Hún:  "Þá giftist þú öðrum strák og þú verður að ákveða þig strax hvort þú ætlir að vera hommi"

Hann:  "Ég ætla frekar bara að vera Hemmi....."

Hún: "Ég ætla ekki að vera homma" 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband